|
|
17.01.2007 23:41:47 / SibbaogElin

eða
hvað?
»
26.12.2006 05:29:42 / Sibba
.
Gleðileg
Jól

Jólin komu snemma og fóru ennþá
fyrr.
Desembermánuður byrjaði náttúrulega með
prompi og prakt. Jólaprófum var skellt á mann til þess
svona að sjá örugglega til þess að maður kæmist í engann
jólagír, mér var sagt að spila á Jólatónleikum í Tónlistarskólanum,
ég var ekki
prentuð á dagskránna og mér var
gleymt! Og
til þess að setja punktinn yfir I-ið þá klúðraði ég
stærðfræðiprófinu [að mínu mati] en vinnueinkunnin var þó
splendid!
ég er ekki bitur út í desember.
En mér til mikillar hamingju varð þó Aðfangadagur
ágætur.
Ég vaknaði og horfði á teiknimyndirnar, pakkaði inn seinustu
pökkunum og raðaði öllum pökkunum undir tréð. Ég sé þó eftir því að
hafa verið svona ferlega mygluð og ennþá á náttfötunum þegar Elín
og Erla komu til mín með pakkana. Hef sennilega komið þeim úr
jólafýling við það að sjá mig svona!

Við vorum tíu sem voru
heima hjá mér um jólin.
Sem betur fer var litli frændi minn lasinn, sem sagt hann var ekki
jafn hæper og hávær eins og oftast. Nei nei, illa sagt en hann var
sjálfum sér líkur í dag svo ég er þakklát fyrir þetta eina
kvöld.
Margir pakkar voru undir trénu eins og alltaf, keyptum okkur
reyndar nógu feitt og breytt tré í ár svo það týndist ekki.
Ég er ekki neitt smá sátt með mínar gjafir og svona til þess að
monta mig aðeins þá fékk ég meðal annars::

Ætla að láta þetta
jólainnskot nægja.
Kv. Sibba sem býður eftir áramótunum.
»
23.12.2006 03:53:34 / Elín
Zero.
Ég er ekki að fatta að jólin séu á
sunnudaginn og núna er tæknilega séð laugardagur. Þetta er mjög
fljótt að líða og áður en við vitum af þá er nýtt ár gengið í garð.
Árið 2007. Sem er árið sem allt breytist, 91 árgangurinn útskrifast
í vor og allir halda sína leið í átt að draumum sínum. Ég hef ekki
alveg ákveðið mig. En eins og staðan er núna þá er það
náttúrufræðibraut-líffræði í Versló. Þetta er alltaf að breytast
svo. 
So this is Christmas.
Ertu ekki að djóka með þetta stormverður? Ekki gaman, jólin verða
svona rugning og rokhljóð úti, svo jólalegt eins og öll hin árin
sem rauð jól hafa verið. Mig langar í hvít jól, einhver hér sem
tekur undir það?
I'm dreaming of a whiiiiiiite Christmas! Bing
Crosby alveg að taka undir það á fóninum hérna hliðin á
mér.
Já síðastliðinn mánudag var mjög misheppnað
Jólaball Hólsins. Eða mér fannst það svona 1000x leiðinlegra en
jólaballið í fyrra vegna þess að núna var haft einhverja helvítis
dagsskrá og hljómsveitirnar tóku náttúrlega korter hver. Þannig
stemningin var bara Zero þegar danstónlistin fór aftur í
gang. Samt bjargaðist þetta næstum því vegna þess að myndirnar af
mér af Sibbu frá ballinu eru bara ansi góðar. Svo var kvenrembunni
úr 8. bekk Arnari "með hundahúfuna" gefið 4 kinnhesta ef ég
man rétt frá stelpunum í 10. bekk og er væntanlegt myndband á
leiðinni fyrir spennta Omgpoppkex-fans.
Eins gott að minnast á það, mér gekk vel í
prófunum hæsta einkunn var 9 í stæ, nátt, og íþr. og lægsta 6,5 í
samfél. Og meðaleinkunnin var 8,1. Hohohoho.
Rústa þessu með 10 í öllu á samræmdu. Tjaaaa næstum því

Ahh ætla ekki að tefja tíma ykkar meira
kæru OmgPoppkex-fans því ég nenni ekki að pikka á stíft P og stíft
K lengur.
Later Fans! 

»
17.12.2006 13:50:53 / Elín
»
20.11.2006 21:54:11 / Sibba
.

Ekki Sem
Verstar. ((Einfaldlega Bestar.))
»
19.11.2006 01:09:16 / Sibba
.
Stíll 2006
Hóls Style

-
Sannkallað
upplifelsi dauðans!
-
Verðlaun fyrir bestu
möppuna.
-
Verðlaun fyrir
fatahönnunina
- Lenntum í
2.sæti!
Það hefur ekki verið
mikill tími undanfarið til að blogga, ég, Elín og Ester erum búnar
að vera á kafi í Stíl og seinustu daga höfum við
bæði::
Grátið
Hlegið
og
Syrgt.
Í dag vöknuðum við
klukkan 11 og áttum eftir að klára möppuna okkar. Þannig við
skelltum í okkur Cheerios með kókómalti, skoðuðum blaðagreinina um
okkur í Morgunblaðinu og hófumst strax handa.
Ég klippti út myndir og skrifaði texta, Elín kaffilitaði og brenndi
blöð og Ester litla prjónanörd prjónaði kápuna á bókina.
Mætingin á keppnina var klukkan hálf
þrjú, þrjú.
Mættum við ofcourse of seint eins og sönnum dívum sæmir, enda tók
mappan sinn tíma.
Klukkan fjögur byrjuðum við að skella
grímu á Elínu og gekk það eins og í sögu, aldrei verið jafn flott
og aldrei gengið jafn vel.
Við mættum á keppnina með hátt sjálfstraust á verkinu okkar, og það
fór ekki minnkandi þegar við fengum t.d. spurningar frá fólki
hvernig það gæti búið sér til svona eða hrósa okkur einfaldlega
fyrir flotta flík.
Elín workaði sviðið líka frábærlega þegar hún steig á svið með
rassdillingum og væmnu brosi!
Þetta hlítur að minnsta kosti að hafa
virkað. Fyrstu verðlaunin sem voru afhent voru fyrir
möppuna, fyrsta skiptið sem þau eru veitt.
Og hver haldiði að hafi ekki tekið þau beint í vasann! Jú auðvitað
Hóllinn, okkur datt EKKI í hug að fá verðlaun fyrir möppuna.
Eftir möppuverðlaunin var gefið fyrir hár og síðan förðun.
En við vorum ekkert að vilja með þau verðlaun, vildum fá
fatahönnunar verðlaunin og fengum þau. Akkúrat það sem ég vildi!
Hélt að ég myndi missa andlitið!
Vorum við farnar að leggja frá okkur pokana sem við vorum búnar að
fá og blómin og farnar að efast um að við myndum sennilega ekki
fara að fá þrjú verðlaun.
Komið var að því að telja upp fimm hæðstu sætin.
5 Sæti - einhver brúnn kjóll.
4 Sæti - Mekka ;D Til Hamingju!
3 Sæti - Jemen.
2 Sæti - HÓLLINN
Þetta er einum of mikið! Þrenn verðlaun á einni Stíls Keppni!
Hóllinn er einfaldlega bestur!
Auðvitað gátum við ekki farið að lenda í 1.sæti.
Vorum sigurvegarar fyrir, með langflest verðlaunin og þvílíka
athygli.
Öfundið
Okkur, hohoho.

»
12.11.2006 15:27:58 / SibbaogElin
.
Stíll
2006
Okay, okay, Okay.
Við höfum ákveðið að sýna hönnun okkar fyrir
keppnina.
Gjörið Svo Vel;;

»
08.11.2006 19:46:35 / Elín
»
06.11.2006 08:43:47 / SibbaogElin
"What the Hell is
computerscience?"
ComputerScience er
með öðrum orðum tölvuvísindi. Sem er eitthvað í augum Ella. En
aðalmálið er að Elli er þroskaheftur. Ef Craig Lamb skilur þetta
ekki þá er þetta ekki uppgötvað orð. En Elli hélt því fram að hann
væri að segja að við værum í tölvutíma. En tölvutími er víst
ComputerClass svo þetta virtist vera einhver steypa hjá
Ella.
 
Raunveruleikurinn er
í fullu fjöri hjá sumum. Sibba er gjaldþrota á leiðinni í vinnu.
Elín er á leiðinni í framhaldsnám og að verða fátæk aftur! Sibba
hefur gengið í sömu fötunum frá byrjun leiksins og á enga
þvottavél. Elín hefur hins vegar þvegið fötin sín og var að kaupa
sér nærföt, ef hún hefur verið í einhverjum nærfötunum frá byrjun
leiksins þá er hún víst komin með sveppasýkingu og Sibba
líka.
Kv.
Elín&Sibba

»
04.11.2006 01:12:06 / Sibba
. Kóparokk
Við ætluðum sko aldeilis að beila á því að fara á Kóparokk.
Hringdi í Elínu um hálf fimm og sagðist vera alltof þreytt til að
vera að fara á Kóparokk og spurði hvort við gætum ekki bara farið á
Mýrina. Sem Elín er reyndar mjög spennt yfir að
sjá.
Á endanum peppuðu við hvor aðra upp með því að fara í Top Shop,
létta Smáralindaferð og komumst í
Kóparokksgírinn.

Húsið opnaði klukkan sjö en
eins og gullna reglan segir:: Ávallt skal mæta seint!
Kannski ekki mjög seint eins og við gerðum. En við mættum á helvíti
réttum tíma því við náðum að heyra Skullbreakers og Spookey Jetson
spila. Þetta var mjög blöff og töff hjá
ykkur!
Ester var sérstaklega on fire í kvöld og hvað þá Tinna. Gátu
einfaldlega ekki hamið sig, og afturendar á mörgu fólki misþyrmdir.
Reyndar toppaði Elli allt og hann kleip svona léttilega í rassinn á
einum gaurnum og ætlaði að láta þetta líta út eins og ég
og Elín hefðum gert það. En nei gaurinn sá nú augljóslega
að þetta var Elli.
Gaurnum hlýtur að hafa liðið vel restina af
ballinu...
En fyrir þá sem vilja myndir geta farið inn á
-Spes- eða Neds, ég og Elín vorum hvorugar með myndavél
á ballinu.

Ein vel dúuð
mynd af Óla í endann.
Sibba
»
02.11.2006 23:02:41 / Elín
Ó sæl veriði fólkið gott.
Ég
er hér ein og yfirgefin við tölvuna og geyspa aðeins því ég ætla
fljótlega í háttinn. Ég var að pæla hvort það sé skynsamlegt að
snúa sólarhringnum alltaf við eins og margir gera, þar á meðal
ég.
Í
fríum þá sný ég ALLTAF sólarhringnum við, um helgar oftast nær
líka. Og það er ekkert mál að vaka lengi og vakna svo seint á
daginn. En erfiðara virðist að snúa sólarhringnum aftur við. Þannig
maður sofi á næturnar og vaki yfir daginn.
Afhverju
ætli það sé? Útaf því að það er auðveldara að halda sér vakandi
heldur en að reyna sofna kannski? Maður spyr sig, fyrir mig virðist
alltaf jafn erfitt að fara snemma í háttinn. Vegna þess að
sólarhringurinn er einfaldlega allt of stuttur. Maður vill svo oft
hafa mikinn tíma fyrir sjálfan sig, kannski yfir sjónvarpinu eða
tölvunni. Eða þar að segja, slaka á og gera ekki
neitt.
Lífið
virðist vera svo yfirþyrmandi af verkefnum. Maður þarf að standa
sig vel í skólanum, huga að fjölskyldu og vinum. Margir eru í vinnu
og enn aðrir reyna að stunda eins mikið félagslíf og hægt er. Enn
aðrir eru í íþróttum 2-5x í viku. Sumt fólk, stendur sig vel í
skólanum, í íþróttum og í félagslífinu og getur mætt til vinnu. Mér
finnst hálf undarlegt hvernig fólk fer að þessu, kannski vegna þess
að ég er msn fíkill og eyði að meðaltali 2-4 tímum á dag fyrir
framan tölvuna. Sorglegt en satt þá gerir þetta 14-28 tíma á viku!
Þá veit ég afhverju ég myndi aldrei nenna að æfa handbolta aftur.
Ekkert msn ef námið á að hafa forgang. Jeij.
En
afhverju msn? Talar maður ekki við vini sína á hverjum degi?
Afhverju er maður í ósköpunum háður þessu tölvuforriti? Ég gæti
persónulega ekki lifað án þess. Guði sé lof að msn sé blokkað upp í
skóla, þá getur maður að minnsta kosti verið án þess. Allavena msn
kemur í veg fyrir að ég sofi almennilega, læri almennilega og sitji
almennilega. Tölvugláp er helsta orsök vöðvabólgu og ég er
alvarlega þjáð vöðvabólgu. Um daginn þegar ég var ekki hætt í
tölvunni um hálf þrjú hótaði mamma að berja niður tölvuna ef ég
færi ekki að sofa, kannski hefði ég bara átt að leyfa henni að gera
það. 
En
núna ætla ég að sýna smá meiri sjálfsaga og fara að sofa. Klukkan
er orðin 11!
Góða Nótt Nátthrafnar
»
14.10.2006 15:24:23 / omgpoppkex
Omgpoppkex?

Yess.
[Afhverju
þetta nafn, jú við vildum hafa það grípandi og auðvitað líka því
við borðum mikið af poppkexi með
smjöri]
Við
vitum vel að þið hafið beðið eftir þessu allt ykkar líf. Að
Sibba og Elín stofni heimasíðu svo allur alheimurinn getur
fylgst með þeim. Passiði ykkur bara á óvenjulegum uppákomum
sem eiga eftir að hlaðast inná þessa einstöku síðu, þessi
síða mun ríkja í örævir alda, Amen.

»
|
|